Gott
fyrir blaðamenn að vita...
Til
að komast til Ísafjarðar er best og fljótlegast
að fljúga. Flugfélag Íslands flýgur
milli Reykjavíkurflugvallar og Ísafjarðar tvisvar
á dag. Til að bóka flug er heppilegt að heimsækja
www.flugfelag.is.
Flugið tekur ekki nema 40 mínútur. Á Ísafjarðarflugvelli
má finna bæði leigubíla og flugvallarútu
sem kemur gestum inn í miðbæinn.
Á
Ísafirði er hótel og nokkur gistihús:
www.hotelisafjordur.is
www.gistihus.is
www.randburg.com/is/aslaug
Nánari
upplýsingar...
Í tengslum við tónleikana verða nokkri viðburði fyrir listamenn og blaðamenn.
Að kvöldi föstudagsins, verður matur og skemmtun að hætti heimamanna á Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað Um hádegið daginn eftir, verður smá útsýnisferð um nágrennið.
Tónleikarnir hefjast síðan klukkan 16:00 og standa fram yfir miðnætti. En partíið heldur áfram en hvar stuðið verður er ómögulegt að segja á þessari stundu.
Á Páskadag verður hátíðarkvöldverður til heiðurs Frelsaranum fyrir alla gesti hátíðarinnar.
Allar nánari upplýsingar um hátíðina eða sérstaka dagskrá fyrir blaðamenn má nálgast hjá Greipi Gíslasyni í 8983263 eða info@isafjordur.is og hjá Rúnari Óla Karlssyni í 4508000 eða runaroli@isafjordur.is.
Verið
velkomin á Aldrei fór ég suður –
rokkhátíð alþýðunnar.
|