|
|þriðjudagur 18. apríl 2006|
|
|
Heldur betur góður fílingur
|
|
|
Prumpison&Páska-Helgi kunna ekki að vera með móral. |
Nú er þriðja Rokkhátíð alþýðunnar afstaðin. Það var bæði rokkað og rólað og allir á því að allt hafi gengið einsog smurð vél. Húrra fyrir öllum, poppurum, hljóðmönnum, skipuleggjendum, gæzlunni, vertum, þrælunum okkar og síðast en ekki síst gestunum. Sjáumst að ári. |
|
|
|fimmtudagur 13. apríl 2006|
|
|
Æ, ó mig auman
|
|
|
Söngvarinn frá Bíldudal kemur ekki |
Váleg tíðindi berast nú. Við fengum tilkynningu um það nú í morgun að Jón Kr. Ólafsson mun ekki koma fram á laugardaginn. Söngvarinn frá Bíldudal er kvefaður og aumur í hálsi og eins og sönnum atvinnumanni sæmir þá getur hann ekki boðið sjálfum sér og okkur upp á neitt annað nema hinn hreina tón. Mikill missir fyrir hátíðina en ekkert til að láta slá sig útaf laginu. Hann biður fyrir kærri kveðju og er afskaplega leiður yfir þessu. |
|
|
|fimmtudagur 13. apríl 2006|
|
|
Faktorshúsið með veitingar á hátíðinni
|
|
|
Faktorshúsið, glæsilegasta húsið í bænum |
Eins og allir vita munu poppararnir sjá um að metta tónlistarhungruð eyru, en færri vita að listakokkarnir í Faktorshúsinu ætla að sjá um að enginn þurfi að gera það á fastandi maga. Að sjálfsögðu verður boðið upp á fiskisúpu en hún er orðin jafn samofin hátíðinni og góða veðrið. Einnig verða léttir saltfiskréttir og pizzur. |
|
|
|miðvikudagur 12. apríl 2006|
|
|
Listi hinna staðföstu
|
|
|
Háli Slick var staðfastur í fyrra |
Svona lítur röðin út elskurnar.
I´m being good
Weapons
Rúnar Þórisson
Hljómsveit Hafdísar Bjarna
Jan Mayen
701
Kristinn Níelsson
Sign
Mr. Silla
Lack of talent
Borkó
Þröstur Jóhannesson
Drengjakór MÍ
Siggi Björns
Hermigervill
Prumpison
Jón Kr Ólafsson
KAN
Jet Black Joe
Harmonikufélagið og Húsið á sléttunni
Reykjavík!
RASS
Benni Hemm Hemm
Nine elevens
Hairdoctor
|
|
|
|þriðjudagur 11. apríl 2006|
|
|
Tiltekt byrjuð
|
|
|
Kolbein EInarsson kom sterkur inn í tiltektinni í kvöld enda verkmaður af Guðs náð. Mr. Kolbeinn Einarsson was much better than nothing tonight. |
Byrjað er að taka til og gera tónleikastað kláran fyrir stuðið. Allt mjakast í rétta átt, búið að reisa sviðið, fjarlægja allt óþarfa drasl og á morgun verður byrjað að þrífa og huga að lýsingu og hljóðkerfi. |
|
|
|þriðjudagur 11. apríl 2006|
|
|
Drengjakór MÍ í æfingabúðum
|
|
|
Drengjakór MÍ. Á myndina vantar reyndar nokkra hressa drengi.
The High School Boys Choir.
|
Drengjakór Menntaskólans á Ísafirði er staddur í stífum æfingabúðum. Engu er til sparað til að gera atriðið sem glæsilegast. Til að fullkomna verkið, hefur verið ráðinn kórstjóri, Helga Margrét Marzelíusardóttir sem erfði hæfileikana í beinan kvenlegg en margir flinkir stjórnendur á þessu sviði eru í hennar ætt.
Hér er tenging í vídeó frá einu giggi þeirra félaga.
www.teamplayer.blogspot.com |
|
|
|mánudagur 10. apríl 2006|
|
|
Prumpison-leynigestur!
|
|
|
Rassi, annar helmingur Prumpison í góðum fíling í með Mugga í fyrra. |
Gaman að segja frá því að okkur barst það til eyrna rétt í þessu að elskaður og dáður leynigestur mun troða upp með Prumpison.
Hver það er vitum við ekki og bíðum því spennt. |
|
|
|sunnudagur 9. apríl 2006|
|
|
Hitað upp fyrir herlegheitin
|
|
|
Hér sé stuð! |
Á Aldrei fór ég suður í fyrra, var mikið stuð. Efasemdarmenn og konur munu ekki efast mikið lengur eftir að hafa horft á smá samantekt frá stuðinu sem er að finna undir linknum hér að neðan. Við þökkum Jóa í Digifilm fyrir lánið á efninu..
Vonandi hafið þið sæmilega nettengingu því þetta er 44 megabæt.
http://www.digi-film.is/video/aldrei_sudur/aldrei_sudur_wmv_1024.wmv |
|
|
|föstudagur 7. apríl 2006|
|
|
Vaska menn og konur vantar
|
|
|
Snákurinn og Tönnin voru betri en engir í fyrra |
Átta dagar í hátíð og ærin verkefni framundan. Allir sem vettlingi geta valdið og vilja leggja þessari stórmerku hátíð lið eru hvattir til að hafa samband við Smára rokkstjóra í síma 849 8476. |
|
|
|fimmtudagur 6. apríl 2006|
|
|
Upp með tempóið
|
|
|
Dóri kann að hífa tempóið upp |
Við Aldrei fór ég suður prelátar viljum árétta það að það er svo sannarlega kominn tími til að kýla tempóið upp!! Það er að líða að þessu. |
|