Hvar
verða þessir tónleikar?
Þeir verða í frystiklefanum í Edinborg sem er stærsta timburgrindarhús á landinu og teiknað af fyrsta arkitekt Íslendinga, Rögnvaldi Ólafssyni í byrjun þarsíðustu aldar. Húsið er ljósgrænt bárujárnshús í miðbæ Ísafjarðar.
Hvenær?
Þeir verða haldnir 15. apríl og hefjast seinnipartinn. Þeir standa fram yfir miðnætti.
Hvernig
kemst ég til Ísafjarðar?
Fljótlegasta og auðveldasta leiðin er að fljúga.
Flugfélag Íslands flýgur tvisvar á dag
til Ísafjarðar og oftar þegar þurfa þykir.
Hægt er að bóka far á heimasíðu
félagsins www.flugfelag.is
Það
er líka hægt að keyra til Ísafjarðar.
Á vetrum er öruggast að fara um Hrútafjörð,
Strandir, Hólmavík, Steingrímsfjarðarheiði
og Ísafjarðardjúp, ekki nema rúmlega 490
km. Á Íslandi geta veður breyst eins og hendi
sé veifað og því eins gott að vera vel
útbúinn með skóflu og á góðum
dekkjum – aldrei að vita nema bresti á með
páskahreti þetta árið.
Er
hægt að kaupa gistingu á Ísafirði?
Á Ísafirði er að vinna Hótel og nokkur
gistiheimili. Þau sem erum með heimasíðu eru:
www.hotelisafjordur.is
www.gistihus.is
Litla gistihúsið - reginasc@simnet.is
Kvennabrekka - www.snjor.is/gisting
Fyrir gesti á bílum mælum við einnig með mjög skemmtilegum gistimöguleikum í innan við 30 mín akstursfjarlægð frá Ísafirði.
www.bolungarvik.com
www.kirkjubol.is
www.firsthand.is
Er
eitthvað fleira um að vera á Ísafirði?
Á Ísafirði er alltaf eitthvað um að vera.
Um páskana er hin árlega skíðavíka
haldin og á dagskrá hennar finna allir sér
eitthvað við hæfi. Kynntu þér skíðavikuna
á www.skidavikan.is
Allar nánari
upplýsingar má fá á Upplýsingamiðstöð
ferðamála á Ísafirði: info@vestfirdir.is
og 456 5121.
|