Um
Ísafjörð
Hvað
er Ísafjörður? Góð spurning. Það
fyrsta sem kemur upp í hugann er fiskur, tónlist,
skíði og fjöll. Ég held að það
væri hægt að spyrja annan hvern kjamma í
landinu og flestum dytti eitthvað af þessu í hug,
eða allt. Nema fáfræðin sé svo mikil
að vita ekki hvar Ísafjörður er. Og slíkt
er til, sérstaklega sunnan Esjunnar. Nóg um það.
Þetta umhverfi hefur mótað Ísafjörð
og Ísfirðinga frá upphafi og hér eru margir
karakterar sem setja svip sinn á bæjarbraginn. Margir
koma upp í hugann sem eru ómissandi; Maggút
að rífa sig yfir úrslitum í síðasta
leik hjá BÍ eða að Júllinn fiskaði
ekki neitt, Úlfar í Hamraborg að gera alla vitlausa
með frumlegum hugmyndum sem engum dytti í hug nema honum,
Jónas Magg sem hefur ekki breyst neitt í þúsund
ár og gerir ennþá fimleikaæfingar eins
unglingur og Ingólfsbræðurnir sem smíðuðu
svifdreka þar sem teikningin var viskí auglýsing
á baksíðu Playboy. Alltaf koma fleiri sterkir
inn eins og Gunnar frændi sem bókaði Metallicu
í Höllinni en sló því á frest
vegna samræmdu prófana. Það er óhætt
að segja að hér séu ekki allir steyptir í
sama mótið.
Fiskurinn er það sem hefur haldið lífi í
okkur moldbúunum norður í hafi frá upphafi
og heldur vonandi áfram að gera það og tónlistin
hefur borað sig djúpt í sálartetrið
hjá Ísfirðingum í gegnum árin og
haldið okkur réttu megin línunnar. Má rekja
það til stofnunar fyrsta tónlistarskóla
á landinu árið 1911. Skíðin eru ómissandi
þáttur í menningu okkar enda eigum við flesta
Íslandsmeistaratitla frá upphafi og enginn maður
með mönnum nema kunna eitthvað á skíði.
Svo eigum við ólympíufara á öllum
leikum sem Íslendingar hafa tekið þátt í,
nema síðast. Ástæðan? Óli Árna
nennti ekki að fara, taldi sig ekki nógu góðan.
Hvað er meira kúl en að nenna ekki að fara á
ólympíuleikana? Já, Ísfirðingar
sem ekki renna sér eru litnir hornauga. Fjöllin eru
ómissandi þáttur sem mótar umhverfið
og ramma Ísafjörð inn þar sem undankomuleiðin
er bara ein; opið Atlantshafið í norðri.
Þegar Mugison kom með á hugmynd að gera eitthvað
skemmtilegt á Ísafirði, lá beinast við
að hrista þessa þætti saman og búa
til góðan og sterkan kokteil sem bragð væri
af. Niðurstaðan var tónleikar vegna hefðarinnar,
í Skíðavikunni vegna þess að þá
er tryggt stuð í bænum, í gömlu fiskvinnsluhúsi
vegna sögunnar og fjöllin í kring setja punktinn
yfir i-ið.
Verið
velkomin á Ísafjörð. Hér á
engum að leiðast.
Heljarskinn
|