| Listamenn |
|
| 9/11s |
| |
Þeir eru hressir strákarnir í 9/11 enda allir blóðbornir Ísfirðingar. Þeir spila rokk af gamla skólanum og eru ekkert að finna upp hjólið enda til hvers að gera það þegar rokkið er allt sem þarf.
|
| Appolo |
| |
Ungir strákar sem eru að gera góða hluti. Besservisserar af bestu gerð sem kalla ekki allt ömmu sína.
|
| BMX |
| |
Þessir drengir hafa undanfarið verið að trylla píurnar á böllum víða um land, enda miklir stuðboltar á ferð. Nú er stefnan sett á plötu og meira stuð.
|
Borko
|
| Dóri Hermanns |
| |
Dóri er mikill brandarakarl og nærvera hans fer ekki fram hjá neinum. Talar hátt og hvellt og hefur gert mörgum pólitíkusnum lífið leitt í gegnum tíðina með hnyttnum athugasemdum. Fáir vita þó að Dóri er liðtækur söngvari og faír standast honum snún ing þegar hann syngur „Taking the blues away”.
|
Dr. Gunni og hljómsveit
|
Funerals
|
Gjörningaklúbburinn
|
Gus Gus DJs
|
| Haddi Bæjó |
| |
Haddi Bæjó er bæjarstjórinn okkar og mikill húmoristi. Að sjálfsögðu var hann til í að taka þátt, setja upp heddfóninn og þeyta nokkrum skífum. Við skulum spyrja að leikslokum...
|
Haudson Wayne
|
Jóhann Jóhannsson
|
| Jói 701 |
| |
Hér er skrýtinn fýr á ferð. Dularfullur rafpoppari sem lítið fór fyrir þegar hann gekk menntaveginn á Ísafirði. Það verður gaman að heyra hvaða tóna hann dregur upp úr hatti sínum þann 10. apríl.
|
Kippi Kanínus
|
Muggi
|
Mugison
|
| |
Þennan mann þarf vart að kynna. Bolvíkingur og Ísfirðingur sem fékk bakteríuna við karókísöng með pabba krabba í Malasíu. Nú er drengurinn orðinn stór og búinn að gefa út eina plötu og önnur á leiðinni. Nánar á www.mugison.com.
|
Óli Palli
|
Siggi Björns BigBand
|
| |
Flateyringurinn Siggi Björns er trúbador af lífi og sál og hefur lifað flökkulífi og sinnt sjómennsku þess á milli í mörg ár. Hér er hann mættur með fleiri snillinga sem sýna að ýmislegt er hægt að kalla hljóðfæri. Áhugaverð músík og mikið sjónarpil á ferð.
|
Singapore Sling
|
| Skúli Þórðar |
| |
Skúli er hinn endinn á litrófinu m.v. Jóa 701. Hér fær einfaldleikinn að njóta sín. Gítar, rödd og textar sem koma öllum við.
|
| Steindór Anderssen |
| |
Trillukarl frá Suðureyri sem leiddist út á framabrautina með Sigurrós og hefur þanið raddböndin um víða veröld. Steindór alveg ekta Vestfirðingur. Sviðsljósið hefur ekki stigið honum til höfuðs og sjómennskan er honum í blóð borinn.
|
The Lonesome Traveller
|
Trabant
|
Tristian
|
Villi Valli
|
| Þórhallur á Þingeyri og Olavi |
| |
Félagarnir slógu í gegn á tónleikum í vetur með hnyttnum textum og góðum lagasmíðum. Þórhallur er Þingeyringur Olavi er sem er altmuligman og tónlistarkennari á Þingeyri. Ef þið rekist á síðhærðan víking með hárband og alþaktan leðri, eru góðar líkur á að þar sé Olavi á ferð.
|