Back to All Events

SSSól - Páskaball á Edinborgarhúsinu

  • Skíðavikan 7 Aðalstræti Ísafjörður, Ísafjarðarbær, 400 Iceland (map)

Miðasalan er hafin https://www.midix.is/.../paskaball-med-ss-sol-a.../eid/221

Páskaballið á Ísafirði var eitthvað sem maður vildi alls ekki missa af, eitt skemmtilegasta ball ársins og nú ætlum við að rifja upp þessi skemmtilegheit í Edinborgarhúsinu n.k. Páskasunnudag 31. mars.

Gullfoss við bryggjuna, allir á skíðum um daginn og svo ball um kvöldið. Þetta er lífið!

Hljómsveitin SSSól hefur haldið mörg páskaböllin í gegnum tíðina og bætir núna enn einu við, gömlu leðurbuxurnar dregnar fram, dansað við gömlu góðu lögin og allir sexý!

Sérstakur gestur, hin eina sanna Magga Geirs.

Húsið opnar kl 22:00, hljómsveitin byrjar að spila kl 23:00 og ball til 02:00.

Allt eins og það á að vera. Ég hlakka til að sjá ykkur.

PS.
30 ára aldurstakmark.

Previous
Previous
March 31

Páskamessa í Holtskirkju