Dagskrá Skíðavikunnar 2024 er í smíðum og mega gestir eiga von á frábærri skemmtun um páskana.
Dagskráin er uppfærð eftir því sem viðburðir bætast við.
Ábendingar um viðburði má senda á skidavikan@isafjordur.is.
Hátíðarmessa og messukaffi í Ísafjarðarkirkju
Hátíðarmessa og messukaffi verður í Ísafjarðarkirkju páskadag klukkan 11. Kvenfélagið býður upp á messukaffi að messu lokinni.
SSSól - Páskaball á Edinborgarhúsinu
Páskaballið á Ísafirði var eitthvað sem maður vildi alls ekki missa af!
Páskamessa í Suðureyrarkirkju
Páskamessa verður haldin í Suðureyrarkirkju kl.14 á páskadag.
Aldrei fór ég suður — laugardagur
Aldrei fór ég suður fagnar 20 ára afmæli í ár. Kampa-skemman opnar klukkan 18 og fyrsta band stígur á svið klukkan 19.
Handritin brennd heim - viðburður í Úthverfu
Sýning gímaldins hefst með viðburði á laugardag fyrir páska.
66°Norður tónleikar á Aldrei fór ég suður | Birnir og GDRN
Í tilefni af Aldrei Fór Ég Suður hátíðinni munum við halda tónleikaviðburð á Ísafirði í versluninni Djúpið sem selur 66°Norður vörur.
Dokkan - markaður og lúðrasveitin
Opið frá kl.13-24
Markaður smáframleiðenda og Lúðrasveit tónlistaskólans mætir.
Páskaeggjamót HG og furðuföt í Tunguskógi
Allir krakkar fæddir 2012 og síðar geta tekið þátt í þrautabrautum.
Páskaeggjamót HG í Tungudal
Allir krakkar fæddir 2012 og síðar geta tekið þátt í þrautabrautum.
Miðnæturtónleikar Bríetar
Í fyrra mætti Bríet á Vagninn og hélt miðnæturtónleika við gríðarlega góðar undirtektir og stappfullt hús.
Nú að ári liðnu ætlar hún að endurtaka leikinn. Bríet byrjar að spila um miðnætti og ætlar að dansa og syngja með fólkinu inn í nóttina.
Aldrei fór ég suður — föstudagur
Aldrei fór ég suður fagnar 20 ára afmæli í ár. Dagskráin er með besta móti og gleðin föstudaginn 29. mars. Kampa-skemman opnar klukkan 18 og fyrsta band stígur á svið klukkan 19.
Ekki gleyma að blómstra – sýningarlok í Úthverfu
Sýningu Bjargar Bábó Sveinbjörnsdóttur lýkur með látum á föstudaginn langa.
HAMINN NEISTI - Ragnhildur Weisshappel
Ragnhildur Weisshappel sýnir ný verk unnin úr sykurmolum og gifsi.
Maður gerir ekki rassgat einn — Sögusýning í tilefni 20 ára afmælis Aldrei fór ég suður
Ljósmyndasýningin Maður gerir ekki rassgat einn heiðrar sjálfboðaliðana sem hafa starfað bakvið tjöldin og komið Aldrei fór ég suður á koppinn ár eftir ár, í 20 ár.
Sýningin opnar kl. 15 föstudaginn langa.
Staðsetning: Grunnurinn við Byggðasafn Vestfjarða, Neðstakaupstað
Dimmalimm í Kómedíuleikhúsinu
Ævintýrið fjallar um prinsessuna Dimmalimm sem eignast góðan vin sem er stór og fallegur svanur
Dokkan - útgáfutónleikar
Opið frá kl. 13-24
Útgáfu tónleikar Kristín Sesselja, kl. 17:00
Furðufatadagur í Tungudal
Það er alltaf gaman á skíðum – og það verður bara skemmtilegra þegar allir mæta í búningum!
Jónfrí - Gosi - Keli á Dokkunni
Gosi, Jónfrí og Keli og þeirra óviðjafnalegu hljómsveitir keyra páskana í gang.
Sóðabrók snýr aftur á Vagninn!
Sviðslistahópurinn Sóðabrók snýr aftur enn eina ferðina á Vagninn, Flateyri!
Tónlistar- og helgistund í Flateyrarkirkju
Tónlistar- og helgistund á skírdag kl. 20 í Flateyrarkirkju.
GDRN & Magnús Jóhann í Ísafjarðarkirkju
Söngkonan GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann hafa komið mikið fram sem tvíeyki frá því að þau gáfu út hljómplötuna Tíu íslensk sönglög, árið 2022