Back to All Events

Lífið er lotterí í Kómedíuleikhúsinu

  • Skíðavikan Ísafjörður Ísland (map)

Lífið er lotterí er söngdagskrá tileinkuð textasmiðnum og leikskáldinu Jónasi Árnasyni. Hver kannast ekki við slagara á borð við Langi Mangi, Við heimtum aukavinnu, Hæ hoppsasí, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Augun þín blá og þannig mætti lengi telja. Segja má um Jónas með hans eigin orðum úr einu af hans vinsælu söngtextum, sem kóngur ríkti hann, og bæta við yfir leiksviði og fjöldasamkomum í áratugi og gjörir enn. Þegar landsmenn koma saman þá er oftar en ekki sungið eitthvað úr smiðju Jónasar Árnasonar.

Þetta verður syngjandi hér og syngjandi þar skemmtilegt kveld þar sem þrjú á sviði munu flytja perlur Jónasar og allir syngja með.

Kómedíuleikhúsið Haukadal Dýrafirði
Miðasala: midix.is
Miðasölusími: 891 7025
Miðaverð: 4.500.- kr

Previous
Previous
March 28

Myndlistarsýning leikskólabarna

Next
Next
March 28

Valdirmar og tveggja rétta