Back to All Events

Páskaföndur í Edinborg

  • Skíðavikan Ísafjörður Ísland (map)

Komum okkur í páskagírinn og föndrum saman

Falda býður upp á skapandi föndursmiðju í Rögnvaldarsal í Edinborg á Skírdag milli klukkan 12 til 14.

Foreldrar/ forráðamenn, komið og byrjið páskafríið með barninu/börnunum og föndrum saman páskaskrautið.
Kíkið við og leyfið sköpunargleðinni að njóta sín!

Áttu tóma eggjabakka eða eldhúsrúllur?

Það leynist oft ýmislegt nytsamlegt í endurvinnslutunnunni sem hægt er að endurnýta í allskonar föndur. Falda hvetur alla til að mæta með eitthvað eitt úr endurvinnslunni, og saman finnum við leið til að breyta því í páskaskraut

Á staðnum verður málning, litir, lím, perlur og f.l. skemmtilegt á meðan birgðir endast.

Previous
Previous
March 28

Skíðafélag Ísfirðinga - Fjallaskíðaferð í Botnsdal

Next
Next
March 28

Skíðaskotfimi á Seljalandsdal