Back to All Events

Siggi Björns, Franziska Günther og Magnús Björnsson með tónleika í Vagninum

  • Vagninn 19 Hafnarstræti Flateyri, Ísafjarðarbær, 425 Iceland (map)

Siggi Björns, Franziska Günther og Magnús Björnsson með tónleika í Vagninum. (eða eins og Vagnstjórinn hér áður sagði: "Verða að spila í Vagninum"). Þau flytja eigið efni, nýtt og gamalt, og segja mis-sannar sögur af manni og öðrum lögunum til stuðings.
Siggi Björns spilaði fyrst í Vagninum árið 1987, eða áður en Vagninn varð löggildur pöbb. Í gegnum árin hefur Siggi komið þar við með annað hvort pöbbskrall eða tónleika. Franziska spilaði fyrst á vagninum árið 2016 og hefur komið þar við síðan. Magnús er í fyrsta skifti með á trommur, og það verður spennandi að sjá og heyra feðgana. þau ætla sér að taka mark á fyrsta Vagnstjóranum og "bretta upp handleggina" og gera þetta á fullu ferðinni.
Tónleikarnir byrja klukkan 21.00 og er miðasala við dyrnar.
Miðaverð: 3000 kr.
www.franziskaguenther.com
www.siggi-bjorns.com

Previous
Previous
April 5

Nei, hættu nú alveg - PubQuiz með Villa Naglbít

Next
Next
April 5

Næturfossavatnið á Seljalandsdal